Hæhæ
Þá eru bara um 2 vikur þar til ég og Embla förum til eyja í 7
vikur, þið sem ekkert vitið....þá er ég að fara í vettvangsnámið
mitt þar, verð á leikskóla að "læra" í 7 vikur og hún elsku besta
mamma ætlar að passa Emblu mína á meðan. Jónki verður bara hérna í
RVK að vinna
Skólinn gengur bara vel, held ég. Ótrúlegt hvað
maður getur gert allt annað en að læra, ég t.d þreyf allt
húsið(stóru höllina) hérna áðan í staðin fyrir að læra, en þar
sem ég þurfti að skila þessu verkefni áðan þá auðvitað þurfti ég að
gera það eftir að ég var búin að þrífa 
Annars var þetta rugl dagur, húsið í rúst, ég átti eftir að gera
þetta verkefni, Embla hugsanlega að taka tennur og ekkert til að
borða. Ég ákvað að fá mér grjónagraut sem ég fann inni í skáp,
auðvitað þurfti ég að brenna hann, en ég ætlaði samt að borða hann
en NEI þá var ekki til kanill en samt ætlaði ég að borða hann en
NEI þá var hann ekki tilbúinn þegar ég smakkaði hann, grjónin voru
hörð
svo að ég endaði í saltkexi og kóki....úff ekki gott það
en jæja eftir matinn ákvað ég semsagt að drífa mig að taka
húsið í gegn og svo þurfti ég að klára þetta helv...verkefni og svo
til að toppa daginn þá kúkaði Embla svo svakalega að það fór út
fyrir samfelluna og sokkabuxurnar og ég var ein heima, var næstum
því búin að hringja á hjálp!!! við erum að tala um það að það var
kúkur á milli tánna á henni
og ég gat ekki baðað hana vegna þess
að ég var að elda á fullu. Veit ekki alveg hvað ég gerði til að
verðskulda þetta. En dagurinn varð þó skárri því að ég eldaði
frábæran kjúlla 
Langaði svo að prófa að setja inn myndir af snúllunni minni
hún er nottla bara algjört æði pæði, farin að velta sér af baki á
maga, sitja sjálf í smástund, drekka sjálf úr pela og stútkönnu og
örugglega eitthvað meira...já t.d farin að boraða
cheerios,grænmeti, ávexti og brauð
sætabollan mín. Hún er
líka búin að fara 2x í sund og finnst það æði 
Ein lítil saga af henni í lokin. Ég var að fara að baða hana og
er eitthvað að tala við Jónka þá ákveður Embla að gubba á mig, ohh
sætabolla. Svo er ég eitthvað meira að tala og trallalala.... finn
ég ekki eitthvað heitt leka á mig þá er Embla að pissa á mig, úff
æi samt ennþá dúlla. Jæja ég hætti að tala við Jónka og dríf hana í
baðið....sé ég ekki kúk í baðinu og Embla ekki búin að vera nema í
15 sek í baðinu...ég varð nett pirruð
hún endaði í smá sturtu


4 mánaða skvís


5 mánaða


Vei kann að sitja sjálf 


að "æfa" sig í að skríða


Erum við ekki líkar? 

Vil taka það fram að það tók klukkutíma að gera þessa færslu,
alltaf að detta út og eitthvað ógeð...þetta er nottla bara
bull...hefði t.d geta verið að læra í staðin....ÞANNIG að það er
eins gott að þið kommentið 
jæja nóg komið af rugli...bæjó